Blómstraðu kennari!

kr. 89.400

„Hvernig getur þú notið þín betur í kennarastarfinu?“
6 vikna einkanámskeið ásamt eftirfylgni.
Ef þú finnur fyrir þyngslum í starfi er brýnt að staldra við  til að ná áttum, efla sig og styrkja. Finna eldmóðinn. Kulnun? – Nei takk!
Þegar þér líður vel í starfi tekst þér betur að gefa vel af þér í samstarfi og þú nærð betur til nemenda þinna. Vellíðan í starfi hefur eflandi og jákvæð áhrif á daglegt líf þitt.
Fyrir starfandi kennara í grunnskóla.

 

Til að styrkja þig í starfi – efla eldmóðinn – komast hjá kulnun,

  • Mætir þú erfiðum og oft óvæntum áskorunum á hverjum degi?
  • Er mikill óróleiki og agaleysi í nemendahópnum?
  • Er enginn tími til að sinna nemendum á þann hátt sem þú vilt?
  • Ertu nær örmagna eftir kennsludaginn?
  • Eru erfiðleikar í foreldrasamstarfi?
  • Bráðvantar námsgögn við hæfi?
  • Fara kvöldin og helgarnar í að reyna að klára undirbúning fyrir kennsluna?
  • Gengur samstarfið við samkennarana ekki nógu vel?
  • Hvenær varst þú síðast besta útgáfan af þér í skólastofunni?
  • Nærðu að slaka á í frímínútunum á kennarastofunni?
  • Hefur þú rætt vanlíðan þína við trúnaðarmann kennara eða stjórnendur?
  • Hvað ætlar þú að gera til að verða besta útgáfan af þér?

Þegar þér líður vel í starfi þá verður allt svo miklu auðveldara, þér tekst betur en annars að gefa vel af þér í samstarfi og þú nærð betur til nemenda þinna. Vellíðan í starfi hefur eflandi og jákvæð áhrif á daglegt líf þitt.

Gefðu þér rými til að þér líði betur í starfi.  Langtímaveikindi og kulnun ber að forðast. Kennarastarfið getur verið svo gefandi og spennandi, alltaf eitthvað nýtt að gerast og það að gefa gefið unga fólkinu tækifæri til mennta og aukins þroska er ómetanlegt.

Veldu að vera besta útgáfan af þér!  Kulnun – Nei takk!

Ath!
Skólastjórnendur hafa margir hverjir tök á því að aðstoða kennara til að styrkja sig í starfi og einstaklingsstyrkir fagfélaganna geta hér einnig nýst þér vel.