Blómstraðu í einkalífi og starfi

kr. 139.000

Njóttu þess að vera þú!
6 vikna umbreytandi ferli (+ eftirfylgni)

Þú eykur sjálfstraust þitt og sjálfsvirðingu, gildin þín verða sýnilegri, áræðnin eykst samhliða aukinni samskiptafærni og með auknum eldmóð verður auðveldara að fara út fyrir þægindahringinn til m.a. að finna skapandi lausnir á aðstæðum sem þér þóttu áður erfiðar. Vellíðan eykst með gæðastundum og frítíma og það verður auðveldara að taka skrefin í átt að markmiðunum. Hér er líka unnið með erfiðar og neikvæðar hugsanir.
Næsta námskeið: 19. ágúst 2026.

  • Hvers þarfnast þú í dag til að þú getir notið þín betur?
  • Hvað þarf til að þú getir náð að blómstra bæði í einkalífi og starfi?
  • Hvert viltu stefna og hvernig viltu komast þangað? Gefðu þér tíma fyrir þig til að efla sjálfstraust þitt, eldmóðinn og kraftinn þinn, efla þig á marga vegu.

    Markmið námskeiðsins: Að aðstoða þig til að efla sjálfstraustið, sjálfsvirðinguna, sjálfsmatið, áræðni, eldmóð, bjartsýni þína á framtíðina. Efla samskipta og félagsfærni, auka vellíðan og gleði.  Finna nýja möguleika þannig að þú getir náð að blómstra og njóta þín betur!
    Þegar álag er mikið í lengri tíma er hætt við að stressið þróist út í kvíða og andlega þreytu. Erfiðar og neikvæðar hugsanir draga úr orku og framkvæmdaþrótti. Því er svo mikilvægt að vita hvernig er hægt að vinna með slíkt.  Losum okkur við óþarfa kvíðatilfinningar. Finnum jákvæðar og skapandi lausnir.

Skipulag námskeiðsins:
6 vikna umbreytandi ferli 

  • Námsefni hverrar viku er sent til þín fyrir vikubyrjun ásamt vinnubók sem þú getur prentað út.
  • Eitt kvöld í viku er kennsla á netinu, 1 – 1,5 klst., þar sem farið er í gegnum efni vikunnar og hægt er að ræða málin.
  • Þú færð tvisvar einkatíma í markþjálfun, þann fyrri í viku eitt eða tvö.
  • Þér er í raun fylgt í gegnum allt hópnámskeiðið.
  • Að námskeiðinu loknu er eftirfylgni á netinu í formi netpóstasamskipta og / eða stuttra netsamtala.

Næsta námskeið: 19. ágúst 2026.

Lífið er núna! Þú átt að fá að njóta þín og blómstra!

Nánari  upplýsingar; namstaekni@namstaekni.is