NÁMSKEIÐ & EINKATÍMAR
Markþjálfun, einkatímar og námskeið sem auðvelda þér til að taka næsta skref í þá átt sem þú finnur að er rétt fyrir þig.
-
Skólaforðun? Finnum brosið á ný!
Ástæður skólaforðunar geta verið svo ótal margar. Hér gefur starfsfólk skólans sér tíma til að rýna sameiginlega í vandann og leita uppbyggjandi leiða til að efla vellíðan, sjálfstraust og gleði nemenda, þannig að mætingar verði með ágætum og skólaforðun heyri sögunni til? Örnámskeið og vinnustofa fyrir starfsdag í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.kr. 86.000 -
Blómstraðu kennari!
"Hvernig getur þú notið þín betur í kennarastarfinu?" 6 vikna einkanámskeið ásamt eftirfylgni. Ef þú finnur fyrir þyngslum í starfi er brýnt að staldra við til að ná áttum, efla sig og styrkja. Finna eldmóðinn. Kulnun? - Nei takk! Þegar þér líður vel í starfi tekst þér betur að gefa vel af þér í samstarfi og þú nærð betur til nemenda þinna. Vellíðan í starfi hefur eflandi og jákvæð áhrif á daglegt líf þitt. Fyrir starfandi kennara í grunnskóla skólaárið 2026 - 2027kr. 89.400 -
Kulnun kennarans? – Nei takk!
5 vikna einkanámskeið. Vaxandi álag og kvíði í starfi geta verið helstu orsakavaldar kulnunar. Hér er unnið með það sem þér líður hvað verst með í starfi þínu sem kennari og einnig unnið að kvíðaminnkun.kr. 89.400 -
Hugræn atferlismeðferð
6 skipti, hver tími er 60 mín. Tímarnir dreifast á 1 - 2 mánuði eftir þínum óskum. Við getum breytt því hvernig við hugsum um okkar eigið ágæti, við getum lært að efla okkur og styrkja, byggja upp jákvæða sjálfsímynd. -
Taktu háskólanámið föstum tökum
Fimm vikna einkanámskeið; námsstuðningur; kvíðaminnkun, skipulagning, markmiðavinna, lestrartækni, minnistækni, verkefnaskil, hugarfarsbreyting, sjálfsefling o.fl.kr. 78.800 -
Markþjálfun kennara
5 tímar í markþjálfun (á netinu) fyrir starfandi kennara. Undirbúningstíma í skólanum að lokinni kennslu er líka hægt að nýta til að taka markþjálfunartíma á netinu. Sjá umsögn kennara varðandi "Fyrir og eftir" markþjálfun með JBS.kr. 77.500 -
4 tímar Markþjálfun ISK 59.560.-
Þú tekur ábyrgð og velur þína leið!kr. 70.000Original price was: kr. 70.000.kr. 59.560Current price is: kr. 59.560. -
Markþjálfun 1 stakur tími
Sérhæfð markþjálfun klæðskerasniðin að þínum þörfum. Sjá frábær "pakkatilboð", því það er hagstæðara að kaupa nokkra tíma í einu.kr. 17.500 -
Lærðu að læra; fyrir nemendur í framhaldsskóla
Fimm vikna einkanámskeið, námsstuðningur; skipulagning, markmiðavinna, lestrartækni, minnistækni, verkefnaskil, kvíðaminnkun, hugarfarsbreyting, sjálfsefling o.fl. Sjá umsögn þátttakanda...kr. 74.500 -
Bókin; Að læra að læra – með sjálfseflingu.
kr. 4.990Bókin er til afgreiðslu: namstaekni@namstaekni.is Kennslu- og verkefnabók fyrir 7. - 10. bekk en hentar líka vel fyrir einstaklingsvinnu heima. Nemandinn þarf að eiga sitt eigið eintak til að geta unnið verkefnin í sjálfa bókina. Nánari upplýsingar um bókina hér.
-
6 tímar Markþjálfun ISK kr. 84.000.-
Gefðu þér tíma fyrir þig.kr. 105.000Original price was: kr. 105.000.kr. 84.000Current price is: kr. 84.000.
Viltu vita meira?
Sendu okkur fyrirspurn á jona@namstaekni.is









