Finnur þú oft fyrir kvíða? Færðu stundum kvíðakast þegar þú lendir í óþægilegum aðstæðum?
Á „Blómstraðu, laus við kvíðann!“ (10 vikna master class) getur þú lært að vinna með kvíðann þinn þannig að hann hamli þér ekki lengur. Samhliða því nærðu að efla sjálfstraust þitt, eldmóðinn og kraftinn þinn, efla þig á marga vegu.
„Blómstraðu, laus við kvíðann!“ er hvoru tveggja öflug markþjálfun til að skilja hvað liggur að baki kvíðans – og öflug mentor – vinna þar sem unnin eru verkefni til að bregðast við og draga úr áhrifum kvíðatilfinninga.
Námsefni hverrar viku er sent til þín fyrir vikubyrjun ásamt vinnubók sem þú getur prentað út.
Þegar um hópnámskeið er að ræða er hópkennsla á netinu eitt kvöld í viku í 1 – 1,5 klst., þar sem Jóna Björg Sætran fer í gegnum efni vikunnar og hægt er að ræða málin.
Hver þátttakandi fær tvo 60 mín. og tvo 30 mín. einkatíma í markþjálfun hjá Jónu Björgu.
Þátttakendur fá aðgang að lokuðum hóp á Facebook þar sem hægt er að leggja fram spurningar og/eða ræða málin.
Jóna Björg Sætran, PCC markþjálfi, fylgir þér í raun í gegnum allt námskeiðið.
Lágmarksfjöldi á hópnámskeiði er sex þátttakendur.
Einkanámskeið eru einnig í boði og þá er efninu dreift á þann tíma sem best hentar.
Sjá nánar á blomstradu.is